Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst á vefstjóra
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning
Vefpóstur Rala

Ýmir - Íslenskur jarðvegur

VerkefnisstjóriUpphafsárLokaár (áætlað)Stofnun
Ólafur Arnalds1999Samfellt verkefniRALA
Mannmánuðir á áriFjármögnunFramkvæmdarstaðir
6-12RALA, Landsvirkjun o.fl.Um land allt
SamstarfsaðilarBirting/kynning niðurstaðnaNúmer rannsóknar
Sjá lýsingu verkefnisSjá lýsingu verkefnis140-9400, 140-9403 o.fl.


Lýsing verkefnis:
Markmið verkefnisins eru:
· Að afla grunnupplýsinga um eiginleika íslensks jarðvegs,
· Skýra myndun jarðvegsins,
· Flokka íslenskan jarðveg,
· Viðhalda jarðvegskorti af Íslandi
· Taka þátt í öðrum rannsóknaverkefnum þar sem fagleg þekking á íslenskum jarðvegi er nauðsynleg.
· Rannsaka frosteiginleika jarðvegsins og sífrera á Íslandi


Íslenskur jarðvegur hefur á margan hátt sérstöðu, vegna þess að jarðvegurinn telst Andosol, eða Eldfjallajörð, sem aðeins finnst á eldvirkum svæðum jarðar. Sérstaða jarðvegsins gerir það verkum að erfitt er að leita þekkingar á honum í nágrannaríkjunum og fara verður með gát þegar erlendar upplýsingar eru yfirfærðar á íslenskan jarðveg.
Rannsóknir fara fram með því að lýsa jarðvegssniðum og safna sýnum úr hverju jarðvegslagi. Sniðunum er dreift sem víðast um landið og oft tekin í tengslum við önnur rannsóknaverkefni. Árið 2001 var unnið með 20 jarðvegssnið, og svipaður fjöldi er áætlaður 2002.
Allir helstu jarðvegseiginleikar, svo sem kolefni, pH, jónrýmd, vatnsgeymdi og magn og gerð leirsteinda eru ákvarðaðir í sýnunum. Niðurstöðum er komið fyrir í gagnagrunni sem smám saman vex að vöxtum.
Þegar hafa fengist markverðar upplýsingar um myndun íslensks jarðvegs og eiginleika hans. Ný gögn voru kynnt á síðasta ári og stefnt er að birtingu þeirra árið 2002. Nýtt jarðvegskort af Íslandi var ennfremur kynnt árið 2001 (www.rala.is/desert, sjá Icelandic soils). Það byggir á nýrri flokkun jarðvegsins sem verður mótuð enn frekar á næstu árum. Jafnframt leggur umhverfissvið til upplýsingar um íslenskan jarðveg fyrir Evrópska jarðvegskortagrunninn og heimskautajarðvegsgrunninn. Gagnagrunninum Ými er ætlað að hafa mótandi áhrif á þróun flokkunar Eldfjallajarðar (Andosols) í framtíðinni.
Verkefnið hefur yfir að ráð jarðvegsgreiningarstofu, þar sem er tækjabúnaður til að greina helstu jarðvegsþætti, svo sem kolefni, pH, jónrýmd, vatnsgeymd, kornastærð, leirsteindir, o.fl.

Starfsmenn stofnunarinnar taka virkan þátt í samevrópsku samstarfi (COST-622: Volcanic soil resources of Europe) sem miðar að rannsóknum og upplýsingamiðlun um hinn sérstæða og viðkvæma jarðveg eldfjallasvæða. Heimasíða hópsins er vistuð á Rala (www.rala.is/andosol). Sjá einnig Evrópusamstarfsverkefni.

Tengsl við nemendur og þátttaka í námsverkefnum er liður í verkefninu Ýmir. Ólafur Arnalds kennir jarðvegsfræði við Háskóla Íslands. Starfmenn deildarinnar koma með einum eða öðrum hætti að fjölmörgum námsverkefnum er tengjast íslenskum jarðvegi, bæði við Háskóla Íslands og erlenda háskóla.

Meðal starfsmanna eru:
Ólafur Arnalds, Verkefnistjóri, grunnrannsóknir á jarðvegi, flokkun o.fl.
Jón Guðmundsson, eðliseiginleikar, jarðvegsgreining.
Grétar Guðbergsson, sýnasöfnun, meðhöndlun sýna, kolefni, jarðvegsgreining
Elín Ásgeirsdóttir, meðhöndlun sýna, jarðvegsgreining
Rannveig Guicharnaud, sniðlýsingar, jarðvegsgreining, rúmþyngdarrannsóknir
Barbara Duran (2001), sniðlýsingar, jarðvegsgreining, M.Sc. practicum, Univeristy of Wageningen , Holland..


Samstarfsaðilar
Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins, Hollustuvernd, Háskóli Íslands, COST-622 hópurinn, Landsvirkjun, INRA (Frakklandi), Texas A&M University, USDA-NRCS, og fl.

Þá eru fagleg þekking umhverfissviðs á svið jarðvegsfræði notuð mörgum verkefnum annarra aðila, utan stofnunar sem innan. Þar má nefna verkefnið Landbót (rannsóknir á uppgræðslu), uppgræðslurannsóknir, kolefnisrannsóknir, samstarfsverkefni með Hollustuvernd um hegðun geislavirkra efna í íslenskum jarðvegi, ýmis verkefni í tengslum við virkjanir og virkjanakosti með Landsvirkjun, o.fl.

Birting/kynning
Tímaritsgreinar, skýrslur o.fl.
Ólafur Arnalds. 2002. Volcanic soils of Iceland. Catena. Í vinnslu.

Hlynur Óskarsson, Ólafur Arnalds, Jón Guðmundsson og Grétar Guðbergsson. 2002.
Historical changes in soil carbon levels in Icelandic Andosols. Catena. Í vinnslu.

Guisharnaud, R., 2002. Rúmþyngd íslensks jarðvegs. B.Sc. ritgerð. Í vinnslu, áætluð útgáfa júní 2002.

Ólafur Arnalds og Einar Grétarsson. Jarðvegskort af Íslandi. 2. útgáfa. Stafrænt kort. Sjá www.rala.is/desert (Icelandic soils).

Tarnocai, C., Kimble, J., Swanson, D., Goryachkin, S., Naumov, Y. M., Stolbovoi, V., Jakobsen, B., Broll, G., Montanarella, L., Arnalds, O., Arnoldussen, A., Orozco-Chavez, F., and Yli-Halla, M. 2001. Soils of northern and mid latitudes. (1:15 million scale map). Research Branch, Agriculture and Agri-Food Canada, Ottawa, Canada

Ólafur Arnalds og John Kimble. 2001. Andisols of Desert in Iceland. Soil Science Society of America Journal 65:1778-1786.

Ólafur Arnalds og Fanney Gísladóttir. 2001. Hálslón. Jarðvegur og jarðvegsrof. Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Reykjavík.

Arnalds, O. 1999. Soils and soil erosion in Iceland. In: Proceedings of the 5th International Symposium on the Geochemistry of the Earth’s Surface. Invited paper. (Halldór Ármannson, ed.). Balkema, Rotterdam, The Netherlands. pp.135-138.

Arnalds, O. 1999. Soil survey and databases in Iceland. In: Soil resources of Europe. P. Bullock, RJ.A. Jones and L. Montanarella (eds.). pp. 91-96. Invited paper. EU-Joint Research Center, Ispra, Italy.

Strachan, I., Arnalds, O., Palmason, F., Thorgeirsson, H., Sigurdsson, B.D., Sigurdardottir, H., and G. Novoselac. 1998. Soils of the Gunnarsholt experimental plantation. Icelandic Agricultural Science 12, 27–38

Fyrirlestrar og úrdrættir.
Martin Gerrard, Folkert van Oort og Ólafur Arnalds. 2001. About the formation of hard pan (“móhella”) underlying deserts in Southren Iceland. Úrdráttur, Volcanic Soils (ráðstefna), Azoreyjum, okt. 2001.

Berglind Orradóttir, Archer S., Ólafur Arnalds og Wilding L. 2001. Infiltration rates and frost formation in Andisols: Does vegetation matter? Í: Dynamics and Callenges of Cryosols. Third International Conference on Cryopedology. August 20-24, Institute of Geography/Geocenter, Copenhagen. IUSS og IPA.

Jón Guðmundsson 2001. Water retention as a limiting factor in ecosystem restoration in Icelandic deserts. Úrdráttur, Volcanic Soils (ráðstefna), Azoreyjum, okt. 2001.

Ólafur Arnalds 2001. Frost affected soils in Iceland. Í: Dynamics and Callenges of Cryosols. Third International Conference on Cryopedology.
August 20-24, Institute of Geography/Geocenter, Copenhagen. IUSS og IPA.

Einnig fyrirlestrar og úrdrættir á ráðstefnum (COST-622) um eldfjallajörð (Ítalíu, Grikklandi, Azoreyjum, Frakklandi og víðar), haldnir af Jóni Guðmundssyni, Hlyni Óskarssyni og Ólafi Arnalds.

 

 Leit í rannsóknum
Sameiginlegur vefur