|
|
Lúpína sem ræktunarplanta
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Hólmgeir Björnsson | 1998 | (2004) | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| | Korpa, Geitasandur |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Jarðræktarskýrsla (fjölrit RALA) | 132-9492 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Undir þennan titil falla annars vegar tilraunir með einæra lúpínu til grænfóðurs og hins vegar alaskalúpínu sem ræktunarplöntu. Tilraunum með einæra lúpínu er lokið, en ekki uppgjöri.
Ýmsar hugmyndir hafa verið um hagnýtingu alaskalúpínu. Uppskerumælingar hafa verið gerðar á lúpínubreiðum, en þær eru yfirleitt mjög ójafnar svo að þær eru óhentugar til tilrauna. Því voru hafnar tilraunir með því að gróðursetja fyrst lúpínu með reglulegu bili milli plantna. Fyllt er í eyður í gróðursetningunni árið eftir.
Auk gróðursetningar var prófuð sáning, en lúpínan sem upp kom var gisin og óregluleg. Auk þess átti hún mjög erfitt uppdráttar í frjósömu landi á Korpu þar sem mikið kom upp af öðrum gróðri. Þessi lúpína reyndist því ónothæf til tilrauna bæði á Korpu og Geitasandi.
Gróðursett lúpína hefur verið klippt á ýmsum tímum sumars sumrin 1998-2000 og rætur grafnar upp um leið á sumum reitum. Aðrir reitir voru klipptir á ný um haustið eða árið eftir og rætur þá grafnar upp. Þessum þætti tilraunanna lauk vorið 2001. Sumarið 1998 voru mældar einstakar plöntur en 1999-2001 eru notaðir 1 m2 reitir.
Á öðrum reitum, þar sem gróðursett var 1998, er lúpínan látin ná þroska í 2-3 ár áður en uppskerumælingar hefjast. Sumarið 2000 hófst mæling uppskeru á nokkrum tímum sumars á Korpu og á helmingi reita í tilraun með mismunandi þéttleika á Geitasandi. Á öðrum reitum á Geitasandi hófust uppskerumælingar 2001.
Sumarið 1999 var gróðursett í 32 reita tilraun með áburð á Geitasandi á landi þar sem ekki hefur verið borið á áður. Árleg áburðardreifing hófst á 2 liði af 8 vorið 1999, annars vegar P og hins vegar NP. Gert er ráð fyrir að uppskerumæling geti hafist haustið 2002 og að áburðardreifing hefjist um vorið á 4 tilraunaliði. Þegar er komið í ljós að P-áburður skilar auknum vexti lúpínu.
Birting niðurstaðna:
Niðurstöður hafa birst í árlegum skýrslum um jarðræktarrannsóknir, Fjölrit Rala nr. 198, 205 og 208. Niðurstöður tilrauna með einæra lúpínu verða kynntar á ráðunautafundi 2002. Niðurstöður mælinga á vexti og uppskeru alaskalúpínu verða kynntar á alþjóðlegri lúpínuráðstefnu á Laugarvatni í júní 2002.
|
|
|