|
|
Þróunarstarf fyrir útflutning á hrossakjöti
|
 |
| Verkefnisstjóri | Upphafsár | Lokaár (áætlað) | Stofnun |
| Guðjón Þorkelsson | 1994 | 1997 | RALA |
 |  |  |  |
| Mannmánuðir á ári | Fjármögnun | Framkvæmdarstaðir |  |
| 4 | Félag hrossabænda, RANNÍS,
Framleiðnisj., RALA
| Keldnaholt, sláturhús, kjötvinnslur o.fl.r |  |
 |  |  |  |
| Samstarfsaðilar | Birting/kynning niðurstaðna | Númer rannsóknar |  |
| Kjötframleiðendur, sláturhús, kjötvinnslur, útflytjendur | Sjá neðst á síðunni | 160-9287 |  |
 |  |  |  |
Lýsing verkefnis:
Markmiðið með verkefninu er að leggja grunn að auknun útflutningi á hrossakjöti með söfnun og útgáfu upplýsinga um framboð mismunandi gæðaflokka eftir árstíma, um næringargildi og magn aðskotaefna, með lýsingum á vörum og með því að setja upp gæðakerfi og gæðaeftirlit og með því að stunda vöruþróun og markaðssetningu. Verkefnið er á vegum Kjötframleiðenda h.f og verður unnið af fæðudeild RALA í samvinnu og samráði við útflytjendur og vinnslustöðvar. Notendur upplýsinganna eru sláturhús og kjötvinnslur sem eru verktakar við útflutning á hrossakjöti og útflytjendur sem einnig munu veita ráðgjöf varðandi kröfur mismunandi markaða. Áætlað er að verkefnið standi í þrjú ár. Vonast er til að verkefnið geti stuðlað að auknum útflutningi á hrossakjöti og folaldakjöti.
Birting niðurstaðna:
Verkefnið er á vegum kjötframleiðenda og skýrslur eru sendar þeim og áfangaskýrslur
til RANNÍS 1995 og1996
|
|
|