Rala.is
VeftréUm stofnuninaSenda póst á vefstjóra
  Greinasafn
Rannsóknir
Nám og námskeið
Starfsfólk
Stjórnir og nefndir
Tenglar
Áskrift að síðum
Um stofnunina
Bókasafn
Búfjársvið
Búrekstrarsvið
Bútæknisvið
Fóðursvið
Jarðræktarsvið
Efnagreiningar
Líftækni
Plöntueftirlit
Matvælarannsóknir
Umhverfissvið
Tilraunastöðvar
Tölvudeild
Útgáfa
Innskráning
Vefpóstur Rala

Þróun og mæling beiskjuefna í alaskalúpínu

VerkefnisstjóriUpphafsárLokaár (áætlað)Stofnun
Jóhann Þórsson19951997RALA
Mannmánuðir á áriFjármögnunFramkvæmdarstaðir
5RANNÍSKeldnaholt
SamstarfsaðilarBirting/kynning niðurstaðnaNúmer rannsóknar
Efnagreiningadeild og Jarðræktardeild RALA
123-9305


Lýsing verkefnis:
Tilgangur verkefnisins er að þróa mæliaðferð fyrir kínólín beiskjuefni (quinolizidine alkaloids) í villtri alaskalúpínu (Lupinus nootkatensis) og nota þá aðferð til að meta breytileika beiskjuefnainnihalds í íslenska stofninum og fá upplýsingar um dægur- og árstíðasveiflu í beiskjuefnainnihaldi stofnsins.

Sýnum verður safnað með tvennskonar hætti: Annars vegar verða tekin sýni af villtri lúpínu með jöfnu millibili yfir sumarið til að hægt sé að mæla breytileika beiskjuefnamagns á hverjum tíma í lúpínuakri yfir sumarið. Hins vegar verða valdar villtar plöntur og þeim fjölgað með einrækt (klónun). Hluti þeirra verður framræktaður í
ræktunarklefum þar sem hita, raka og birtu er stýrt. Á þeim verða gerðar mælingar á dægursveiflu beiskjuefna. Hluta þeirra verður hins vegar plantað úti. Á þeim verða gerðar mælingar á árstíðasveiflu beiskjuefna.

Vænta má að verkefnið skili mæliaðferð til mælinga á beiskjuefnum og komi til með að varpa ljósi á breytileika á styrk beiskjuefna í lúpínu sem hér er, og einnig dægursveiflu og árstíðasveiflu. Slíkar upplýsingar eru mikilvægur upplýsingagrunnur sem mun nýtast við kynbætur lúpínu og einnig gefa mikilvægar grunnupplýsingar um vistfræði lúpínunnar sem munu nýtast við hugsanlega nýtingu hennar til fóðurs eða beitar í framtíðinni.

 

 Leit í rannsóknum
Sameiginlegur vefur